Sérfræðingur á sviði fiskimála
Í tengslum við samstarf Íslands og Alþjóðabankans á sviði fiskimála í þróunarsamvinnu, er auglýst laus til umsóknar staða sérfræðings hjá Alþjóðabankanum á sviði fiskimála (Senior Fisheries Specialist). Sérfræðingurinn verður staðsettur á skrifstofu bankans á Honiara á Salómonseyjum og mun tilheyra deild umhverfis, náttúruauðlinda og bláa hagkerfisins, sem vinnur að því að auka sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda í gegnum verkefni bankans í þróunarríkjum. Sérfræðingurinn mun starfa að verkefnum á sviði fiskimála og bláa hagkerfisins í samstarfsríkjum bankans í Kyrrahafinu. Verksvið sérfræðingsins snýr m.a. að ráðgjöf, greiningarvinnu, undirbúningi og framkvæmd verkefna á sviði fiskimála, bláa hagkerfisins, fiskveiði- og strandsvæðastjórnunar, í samstarfi við viðkomandi stjórnvöld og aðra samstarfsaðila.
Kröfur til umsækjenda eru m.a.:
- Meistara- eða doktorsgráða á sviði á stjórnunar og sjálfbærrar nýtingar fiskiauðlinda, hagfræði, þróunarfræði, eða önnur viðeigandi menntun sem nýtist í starfinu.
- Að minnsta kosti átta ára starfsreynsla í tengslum við stjórnun og sjálfbæra nýtingu fiskiauðlinda og þróunarsamvinnu.
- Góð þekking á stefnumótun og stjórnsýslulegum, hagrænum og tæknilegum þáttum fiskimála, og góður skilningur og reynsla af alþjóðasamningum sem og þróunarsamvinnu á sviðinu.
- Góð þekking og færni í verkefnastjórnun, samstarfi við ólíka haghafa, stefnugreiningum á sviði fiskimála, sem og hæfni til að samþætta greiningarvinnu við framkvæmd verkefna.
- Geta og vilji til tíðra ferðalaga í þróunarlöndum, m.a. til afskekktra ríkja þar sem aðstæður geta verið krefjandi.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og færni í teymisvinnu með aðilum frá ólíkum menningarheimum, aðlögunarhæfni og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Framúrskarandi enskukunnátta er skilyrði.
Alþjóðabankinn tekur ákvörðun um ráðningu. Ráðið er til tveggja ára, frá 1. september 2021, með möguleika á framlengingu. Sérfræðingurinn verður starfsmaður Alþjóðabankans og launa- og starfskjör eru samkvæmt reglum stofnunarinnar.
Umsóknafrestur er til og með 25. mars 2021. Allir einstaklingar, sem uppfylla hæfniskröfur, óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið.
Kynningarbréf og ferilskrá, hvoru tveggja á ensku, skal senda utanríkisráðuneytinu í tölvupósti á netfangið wbg@mfa.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið má finna hér, þ.á.m. frekari upplýsingar um kröfur til umsækjenda. Senda má fyrirspurnir um starfið á netfangið wbg@mfa.is
Upplýsingar um starfstengd kjör hjá Alþjóðabankanum má finna á heimasíðu bankans:
https://www.worldbank.org/en/about/unit/human-resources/benefits
Lönd / Heimsálfa
ÞróunarlöndLiðið tækifæriTækifæri
Atvinnutækifæri