Hoppa yfir valmynd
video thumbnail

Vef-kynningarfundur um tækifæri í Króatíu

Uppbyggingasjóður EES heldur kynningu á orku-, umhverfis- og loftslagsáætlun Króatíu og gerir íslenskum fyrirtækjum kleift að tengjast mögulegum samstarfsaðilum þar í landi.

Föstudaginn 5. nóvember 2021, á milli kl. 9:30 og 13:00, stendur Uppbyggingarsjóður EES fyrir vef-kynningarfundi um orku-, umhverfis- og loftslagsáætlun Króatíu. Markmiðið með fundinum er að tengja saman mögulega umsækjendur frá Lýðveldinu Króatíu og Noregi, Íslandi og Liechtenstein.

Umsækjendur geta sótt um í eftirfarandi köll:

  • Aukin framleiðslugeta með sólarorku – verkefni til að auka orkuframleiðslu með sólarorku að upphæð 7,4 millj. EUR.
  • Orkuvinnsla úr sjó - verkefni sem styðja tilraunir og rannsóknir til að setja upp sjávarvarmadælur til hitunar og kælingar að upphæð 1,5 millj. EUR.
  • Verkefni á sviði jarðhita – verkefni sem styðja þróun hönnunar og tæknilausna fyrir jarðhitaverkefni að upphæð 3,0 millj. EUR.

Vinsamlegast athugið að skráning stendur til 3. nóvember nk.

Sjá allar nánari upplýsingar á vef Orkustofnunar

Lönd / Heimsálfa

KróatíaUppbyggingalönd EvrópuLiðinn viðburður

Dagsetning

5. nóvember 2021

Kostnaður

ISK 0